LIVE - stafrænn rekstur styrktur með azure
vefur
#starfsmanna
~ 70
staður
ísland
markaður
lífeyrissjóður
þjónusta
lífeyrissparnaður og lán
bakgrunnur og áskorun
Fæst stærri þjónustufyrirtæki eru í vandræðum með að þróa og gefa út stafrænar lausnir til að mæta nútímakröfum. Áskorun getur hins vegar verið að reka þær á hagkvæman, öruggan og sveigjanlegan hátt til lengri tíma.
Það á ekki síst við um lífeyrissjóði.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) er einn stærsti lífeyrissjóður landsins og þjónustar þúsundir sjóðfélaga með fjölbreyttum stafrænum lausnum.
Kröfur til slíkra lausna eru miklar, hvort sem litið er til öryggis, áreiðanleika og aðgengis að upplýsingum. Lítil frávik í afköstum eða niðurtími geta haft b ein áhrif á upplifun þúsunda notenda.
Með auknum kröfum notenda um sjálfsafgreiðslu og hraða þjónustu var ljóst að styrkja þyrfti undirliggjandi innviði.
LIVE stóð frammi fyrir dæmigerðri áskorun hjá stærri þjónustufyrirtækjum í dag:
- Vaxandi notkun á stafrænum þjónustum (Mínar síður, umsóknir o.fl.)
- Miklar kröfur um rekstraröryggi og gagnavernd
- Þörf fyrir sveigjanleika í afköstum (álagstoppar vs. róleg tímabil)
- Takmörkuð innsýn í kostnað og nýtingu á innviðum
nálgunin - nútímavætt azure umhverfi
Well Advised vann með LIVE að því að hanna og setja upp Azure umhverfi sem einfaldar rekstur og gerir lausnirnar sveigjanlegri. Markmiðið var ekki að bæta við flækjustigi, heldur þvert á móti, að taka það út.
Helstu áherslur:
- Flutningur og uppsetning í Azure - veflausnir og bakendakerfi sett upp í öruggu og skalanlegu umhverfi.
- Azure App Service fyrir veflausnir - tryggir stöðugan uppitíma og hraða útgáfu efnis og þjónustu.
- Azure SQL Database - stýrð gagnagrunnsþjónusta sem einfaldar rekstur og eykur áreiðanleika.
- Infrastructure as Code (IaC) - Umhverfið skilgreint í kóða til að tryggja samræmi, rekjanleika og hraðari uppfærslur.
- Vöktun og öryggi - innleiddar lausnir eins og Azure Monitor og Defender til að bæta yfirsýn og viðbragðsgetu. Auk þess er notast við Azure Front Door með Web Application Firewall (WAF) til að greina og stöðva netárásir áður en þær ná inn í kerfin.
ávinningur - meiri stöðugleiki og betri innsýn
Með því að færa og nútímavæða innviði sína í Azure hefur LIVE styrkt stafrænan rekstur sinn verulega. Lausnir eru nú bæði öruggari og sveigjanlegri, með betri yfirsýn yfir kostnað og rekstur.
Um leið hefur verið lagður traustur grunnur að áframhaldandi þróun stafrænna þjónusta, þar sem hraði, áreiðanleiki og notendaupplifun skipta sífellt meira máli:
- Aukið rekstraröryggi - lausnir keyra í stöðluðu og öruggu Azure umhverfi með sjálfvirkum uppfærslum. Með Azure Front Door og WAF er hægt að greina og loka á árásir snemma í ferlinu, sem dregur úr áhættu og verndar þjónustuna.
- Meiri afköst og betri skölun - kerfin aðlagast álagi án handvirkra inngripa.
- Skýrari sýn á kostnað - betri yfirsýn yfir notkun og möguleikar á hagræðingu. Í mörgum tilfellum liggur verulegur sparnaður falinn í því að nýta skýjaumhverfið rétt.
- Sterkari grunnur fyrir áframhaldandi þróun - umhverfið tilbúið fyrir frekari stafræna þjónustu og samþættingu.